Í upphafi þarf ég lýsa ástandi og stöðu áður en ég tjá mig um
það sem liggur mest á hjarta. Eins og er er ég staddur heima hjá
foreldrum mínum, sit við tölvuna eins og ætti ekki að koma neinum á
óvart. Ruv.is/poppland, herra Bubbi með Svartan Afgan og herra
Jóhannes Ingi í Paradise Poker með kveikt á msn (joiingi@hotmail.com). Meika ekki
að vera eitthvað tæknilegur og búa til einhverja gleði! Því notast
ég við sviga, þeir eru æði. Var að vinna í dag, eins og sjá má á
færslu hér fyrr í dag. Ný þveginn og þreyttur. Þetta er nánast allt
ástand mitt! Þá er nóg komið um mig!
Ég hef ekki skilið ofverndara barna, veit ekki hvað kvensnifftið
heitir en það er bara aukaatriði. Þetta er kvikindið sem er að
setja út á mikla meistaran Snoop Dogg, hvaða máli skiptir það að
kúturinn sé að tjá sig um bitch's & ho's, uppáferðir og
serðingar, ofbeldi og dráp eða hvað sem það er sem hann
minnist á líka? Haldiði virkilega að talsmátinn hafi svona
gríðarleg áhrif á börn og unglinga, það mikil áhrif að afkvæmi
þessa lands sökkvi í skítinn og maki sig út í eitt með honum? Ég
efast stórlega um það.
Eins og Capone-bræður, Andri og Búi, ræddu um í þætti sínum á
XFM þá hafa börn verið að leika sér í löggu og bófa frá því að
landið var byggt (liggur við). Ekki mundu þeir eftir neinum sem
situr nú inni fyrir að skjóta einhvern í hausinn, ekki man ég eftir
neinum heldur. Ekki minnist ég þess að margar af stúlkunum í mínum
árgang eða fyrir ofan og neðan sem eru að selja líkama sinn hægti
vinstri, upp og niður. Þó að stúlkur selji sig reyndar ódýrt oft en
á annan hátt sem kemur þessu nákvæmlega ekkert við. Point-ið er að
what the fruck, hvað er essi kellsa að rífa sig? Er verið að reyna
að koma sér á framfæri með að setja út á aðra?
Þessi hefðar dama setti líka út á nekt og þess háttar sem fylgir
show-inu hjá krúttlega hundinum. Fólk með viðkvæm augu lítið undan
og leyfið hinum að njóta. Nokkuð viss um að daman sé að reyna að
sanna að hún sé nú gott foreldri þó að hún dangli nú í dóttur sína
við og við þegar hún er óþekk og vill ekki hlýða móður sinni í einu
og öllu, fer á klósettið lokar að sér því hún er feimin við að sýna
kallinum sínum öklana, furðast á því hvernig hún gat átt þessi
börn, var gat á lakinu?
Búinn að týna þræðinum, en ég vona að fegurð skoðanna minna hafi
komist á framfæri til minna þriggja dyggu lesanda! Börn eru
börn og þau eru ekki hálfvitar eins og gamlar konur vilja oft
halda!
Heill sért þú Snoop! Sjáumst á morgun!